Furoshiki á Íslandi

Fallegir, margnota klútar frá Japan — í stað gjafapappírs. Gjöfin sem pakkar inn gjöfinni.

Skoða vörurnar Hvernig virkar þetta?

♻ Ekkert rusl

Klúturinn er hluti af gjöfinni — hann er notaður aftur og aftur, í stað þess að enda í svarta ruslapokanum eftir jólaboðið.

🇯🇵 Frá Kyoto

Klútarnir okkar koma frá rótgrónum framleiðanda í Kyoto sem hefur ofið furoshiki síðan 1937.

🎁 Óteljandi notkun

Gjafapakkning, taska, nestisklútur, hálsklútur, veggskraut — einn klútur, endalausir möguleikar.

Um okkur

Við erum Kampai. Okkur leiðist báðum hin mikla sóun sem gjafapappír veldur í hvert skipti sem gjöf er gefin. Við ákváðum að taka málin í okkar eigin hendur og hófum innflutning á furoshiki-klútum, í von um að draga úr gjafapappírsnotkun landans. Markmið okkar er að það verði óþarfi að vera með svartan ruslapoka undir gjafapappír í hverju jólaboði.

— Gunnar Thor & Bryndís